Enski boltinn - Jafnt á Brúnni, ruglað rautt og yfirlýsing í fyrramálið?
30 November 2025

Enski boltinn - Jafnt á Brúnni, ruglað rautt og yfirlýsing í fyrramálið?

Fotbolti.net

About
Það var jafnt í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Chelsea og Arsenal áttust við.

Arne Slot og Rúben Amorim tóku sigra en Thomas Frank er í miklu veseni þessa dagana. Mögulega fær hann bara sparkið.

Svo fór eitt ruglaðasta rauða spjald í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á loft fyrr í dag.

Það var rætt um þetta og margt fleira í þættinum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrði en með honum í Pepsi Max stúdíóinu voru Magnús Haukur Harðarson og Haraldur Örn Haraldsson.