Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Podcasts
Audiobooks
Bible
By Genre
By Location
By Language
Religious
Music
News
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
27 October 2026
38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við...
27 October 2026
Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil.Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins.Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.
25 October 2026
Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst?Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað?Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn...
24 October 2026
Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið!Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
24 October 2026
Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið.Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.
21 October 2026
Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi.Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.
21 October 2026
38 umferðir - Engilbert Aron special
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.Einnig...
19 October 2026
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson.Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.
19 October 2026
Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær.Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu.Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn...
18 October 2026
Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum.Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur.Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan...