Enski boltinn - Hrein hörmung hjá Liverpool, Man Utd og Tottenham
24 November 2025

Enski boltinn - Hrein hörmung hjá Liverpool, Man Utd og Tottenham

Fotbolti.net

About
Umferðin var erfið fyrir Liverpool og Manchester United en þessi félög koma ekki vel undan landsleikjahléi.

Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Pepsi Max stúdíóinu með nöfnunum Magnúsi Hauki Harðarsyni og Magnúsi Þór Jónssyni. Farið var vel yfir Liverpool sérstaklega.

Einnig var mikið rætt um stórleik umferðarinnar þar sem Arsenal valtaði yfir ömurlegt Tottenham lið og þá var snert á öllum öðrum leikjum í skemmtilegri umræðum.