Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Podcasts
Audiobooks
Bible
By Genre
By Location
By Language
Religious
Music
News
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
30 October 2026
Fjármál sveitarfélaga, traust fólks til lögreglu
Flest stærstu sveitarfélög landsins hafa nú birt fjárhagsuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026. Og staðan er ekki góð - þótt hún sé vissulega misjöfn. Sambands íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing samtakanna, um niðurstöðuna og um stöðu...
20 min
29 October 2026
Gagnaver og verkjalyf við ástarsorg
Það lætur hátt í tölvunum í gagnaveri AtNorth í Reykjanesbæ, þær knýja gervigreind fyrir erlendan viðskiptavin. Búnaður verann er dýr og eftirlitið mikið við verið. Í Danmörku veldur aukin neysla á parasetamóli áhyggjum, ekki síst hjá ungu fólki sem tekur það ekki bara við hausverk, heldur líka alls konar almennri vanlíðan. Þróunin hefur ekki verið alveg sú sama hér en þó ber að varast ofskömmtun.
19 min
28 October 2026
Kosningar í Ísrael annars vegar og Serbíu hins vegar, sjávarjarðir og sjókvíar
Þingkosningar voru haldnar í Ísrael í gær. Þegar búið er að telja yfir 85 prósent atkvæða er ljóst að hvorug meginfylkingin í ísraelskum stjórnmálum mun ná hreinum meirihluta. Afar litlu munar á fylgi þeirra en hægri blokkin, sem Benjamin Netanyahu leiðir, hefur þó eilítið forskot á stjórnarandstöðuna, þar sem Gadi Eisenkot er forsætisráðherraefni. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel...
19 min
27 October 2026
AMOC-veltihringrásin og uppbygging gagnavera
Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið stóð nýverið fyrir sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga og líklegar afleiðingar þess fyrir Ísland.Elín Björk Jónasdóttir vann að undirbúningi æfingarinnar. Hún er líka í stýrihópi sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem skipaður var til að fara yfir stöðu vísindalegrar þekkingar á AMOC og...
19 min
26 October 2026
10. bekkingar um breytingar á einkunnagjöf og uppbygging gagnavera
Nemendur í efsta bekk grunnskólans fá einkunnir í tölustöfum ekki bókstöfum í vetur í fyrsta sinn um árabil. Verður skýrara og auðveldara að bera saman frammistöðu og árangur nemenda og skóla? Margir hafa sagt að tíminn sé knappur og útfærslan ekki ljós, ráðherra hefur litlar áhyggjur en hvað segja 10. bekkingarnir Guðdís Magnúsdóttir, Jakob Ægisson og Urður Óskarsdóttir. Ný greining Samtaka...
19 min
23 October 2026
Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, mögulegar siglingar á milli Aberdeen og Seyðisfjarðar, óleyfilegar framkvæmdir við gagnaver Google í Finnlandi
Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Innviðaráðherra hefur boðað heildarendurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs í haust. Sértæki byggðakvótinn eru aflaheimildir sem Byggðastofnun úthlutar. Strandveiðar og línuívilnun komu lakast út hvað byggðafestumarkmiðin varðar. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræddi við Vífil Karlsson.Hafnaryfirvöld...
20 min
22 October 2026
Leigumarkaðurinn, rjúpnaveiði og bólusetningar
Fasteignamarkaðurinn er með dauflegasta móti. Í mörgum tilfellum eru nýjar íbúðir sem ekki seljast boðnar til leigu - en vandinn er að þær henta ekki allar leigumarkaðnum sérlega vel. Rúnar Pálmason ræðir við Vigni Má Lýðsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Igloo sem rekur vinsælan leiguvef, myigloo.is.Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun og bjartsýni ríkir meðal veiðimanna enda hefur...
20 min
21 October 2026
Áhrif gervigreindar á störf og atvinnuhorfur tölvunarfræðinga, líffræðileg fjölbreytni
Viðmælendur Spegilsins segja að gervigreindin, sem hefur margfaldað afköst við hugbúnaðargerð, sé ein af skýringunum á auknu atvinnuleysi tölvunarfræðinga en margt spili inn í. Bæði eru þau bjartsýn á atvinnumöguleika tölvunarfræðinga til framtíðar.Sáttmálinn um verndun líffræðilegs fjölbreytileika er einn þriggja meginsáttmála sem þjóðir heims komu sér saman um á Heimsráðstefnu Sameinuðu...
20 min
20 October 2026
Atvinnuleysi tölvunarfræðinga, Alberta og Kanada og norðurslóðastefna ESB
Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum. Í október 2024 voru 128 með slíka menntun atvinnulausir en í september á þessu ári voru þeir orðnir 215. Rúnar Pálmason kannaði hverju sætir og ræddi við Ástu Ásgeirsdóttur hjá Vinnumálastofnun.Lengi hefur gætt nokkurrar tortryggni í Alberta-fylki í Kanada í garð stjórnarinnar í...
19 min
19 October 2026
Dómur Danmörku fyrir að búa til barnaníð með gervigreind og sumarvinna ungs fólks á undanhaldi
Nýlega féll dómur í Hæstarétti Danmerkur þar sem tekist var meðal annars á um hvort barnaníðsefni sem væri búið til með gervigreind skaðaði börn. Niðurstaða dómsins var að svo væri. Íslensk lög hníga í sömu átt segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við HR: Rannveig Rist fyrrverandi forstjóri álversins í Straumsvík ræddi nýlega um sjálfsmynd Íslendinga - þeir héldu að þeir væru svo kvikir og...
19 min