108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir
20 February 2026

108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir

Með lífið í lúkunum

About

Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda.

Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma.

Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar jafningjafræðari.

Hún tók fyrsta skrefið í átt að draumnum sínum síðastliðið haust þegar hún byrjaði með alveg dásamlegt hlaðvarp, Tilveruna þar sem hún ræðir við fólk sem talar hreint út um lífið og raunveruleikann, tilvistarkreppur og upprisur.


Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 

💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað Better You munnúðana?

🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.

💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.

💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!