zeno
Home
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Log in
Sign up
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Heimskviður
News & Politics
Icelandic
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Website
Episodes
241
07 February 2026
244 - Átök innan Bandaríkjanna og Heated Rivalry
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga...
48 min
31 January 2026
243 - Nick Fuentes og pöndupólitík
Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því að konur séu útivinnandi,...
44 min
24 January 2026
242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan
Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður,...
43 min
17 January 2026
241 - Komandi kosningar og framhaldsmyndir
Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár.2026 verður ár framhaldsmyndanna í bíó. Við rýnum í dagskrána með manni sem veit allt um Avengers heiminn og...
44 min
10 January 2026
40 min
20 December 2025
Heimskviður - hátíðarútgáfan
Við veljum saman brot af því besta í síðasta þættinum fyrir jól. Við fjölluðum um Sharenting í nóvember og áform yfirvalda á Spáni að setja skorður á það hverju foreldrar megi deila af börnum sínum á netinu og hverju ekki. Og svo reyndum við að svara stærri spurningum, hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar geta hætturnar verið?...
42 min
13 December 2025
240 - Jákvæðu fréttirnar
Við verðum á jákvæðum og uppbyggilegum nótum í Heimskviðum í síðasta þættinum fyrir jól. Þátturinn verður því með örlitlu jólaívafi, við skoðum jólamyndir og jólatónlist en fyrst og fremst ætlum við að segja ykkur jákvæðar og skemmtilegar fréttir utan úr heimi. Til dæmis hvernig ástralskur áhrifavaldur kom því til leiðar að 88 ára gamall ekkill frá Michigan í Bandaríkjunum gat loks hætt að vinna....
48 min
06 December 2025
239 - Kínverska kraftaverkið og orð ársins, bræðibeita
Það eru ekki nema tæp fimmtíu ár síðan kommúnistastjórnin í Kína þar ákvað að opna hagkerfið, leyfa erlendar fjárfestingar og sleppa markaðsöflunum lausum, þó með stífum skilyrðum. Það sem hefur gerst síðan þá er stundum kallað kínverska kraftaverkið: Kína breyttist úr því að vera eitt af fátækustu ríkjum heims í eitt af þeim ríkustu. Hagkerfið þar er nú samkvæmt sumum mælikvörðum það stærsta í...
45 min
29 November 2025
238 - Jarðgöng í Færeyjum og lýtaaðgerðir stjarnanna
Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason fer með...
45 min
22 November 2025
237 - Eitrað fyrir eiginmönnum og loftslagsmálin
Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Þetta gerðist í ungversku þorpi fyrir um hundrað árum síðan. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu...
44 min