About
Í fréttum er þetta helst
Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðurlandi vestra í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju.
Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í kvöld í Kórnum í Kópavogi og lýkur hún þar með tónleikaferðalagi sínu þar sem hún hefur meðal annars komið við í New-York og Lundúnum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi.
Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot.
Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í greininni á Evrópubikarkastmótinu á Kýpur núna í morgun. Kastið nægði Hilmari einnig til þess að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í sumar.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi.
Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld sem kom upp í fjölbýli í Úlfarsárdal. Engan sakaði.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.