zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Toggle Sidebar
zeno
Fréttir dagsins
Fréttir dagsins
Daily News
Icelandic
Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.
Website
Episodes
108
16 March 2026
16.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstHundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðurlandi vestra í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju.Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í kvöld í Kórnum í Kópavogi og lýkur hún þar með tónleikaferðalagi sínu þar sem hún hefur meðal annars komið...
3 min
15 March 2026
15.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstLíbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í...
3 min
14 March 2026
14.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstDavíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag.Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál. Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni...
3 min
13 March 2026
13.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstSíminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti...
3 min
12 March 2026
12.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstHæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar.Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í...
3 min
11 March 2026
11.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstBandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum.Evrópumálin eru komin kyrfilega á dagskrá eftir að ríkisstjórnin kynnti á föstudag þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“Stúlkan sem lögreglan á...
3 min
10 March 2026
10.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný.Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist...
3 min
09 March 2026
09.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstMojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar.Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún fékk 95 atkvæði af 101. Hlynur Már Ragnheiðarson sóttist einnig eftir...
3 min
08 March 2026
08.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstÞingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um...
3 min
07 March 2026
07.03.2026 - Fréttir dagsins
Í fréttum er þetta helstÞjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag...
3 min