About
Gestur okkar í dag er Pétur Már Guðmundsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Saint Pete. 29 ára Rappari og Akureyringur í húð og hár. Pétur er búinn að rappa í fjölda ára og þeyta skífum þar á undan. Hann skaust fram á sjónarsviðið með látum þegar hann gaf út Akureyri fyrir að verða þremur árum, brá reyndar fyrir í lagi á Hamfarapoppi hjá Úlfunum nokkrum mánuðum áður. Mér varð strax ljóst að þarna var á ferðinni textasmiður af Guðs náð og því viðeigandi að hann bæri listamannsnafnið Sankti Pétur en hann gerði tilkall til lyklavaldanna þá og þegar og tjah, mér sýnist hann halda á þeim í dag.
Umræðuefni í þættinum:
- Uppskeruhátíð á föstudaginnAð elta drauminn sinn og synda á móti straumnumGræni Pakkinn kemur út í ágúst árið 2024Fyrirmyndir?Textaskrifin, hvernig verður lag til?Nýja PlatanFatastíllÖnnur áhugamálRiddaraspurningar
Þessi þáttur er í boði:
- KOSMOSCCEPHúðlæknastöðinMango MANFröken ReykjavíkStyrkásLEMONStraumurSvefn & HeilsaSIXTÍslandssjóðirOrka NátturunnarORIGOSmyril LineBAUHAUSPAYDAYLengjanDave&JonsFrumherji
Njótið vel kæru hlustendur.